Tuesday, November 4, 2008

Fullorðna barn!

Barnið mitt er orðið fullorðið. um daginn hringdi síminn, það var Tómas. Hann spurði eftir Sögu! þetta er í fyrsta skipti sem saga hefur fengið formlegt símtal:) Hún var ekkert lítið ánægð með þetta, tók sér smá pásu frá gítarnum og spjallaði heil ósköp við kærastann... en ekki á mannamáli! hún fór aftur í fornöld og talaði eitthvað steinaldarmál.... en tók sér pásu frá gítarnum, það er alveg hellingur.. hún er gjööööörsamlega límd við það apparat!

ég náði símtalinu upp á vídjó... enjoy!



7bba

13 comments:

Anonymous said...

En ógeðslega fyndið!!!
Það er sko alvöru fullorðins að það sé síminn til manns :)

Kv. Hildigunnur

Anonymous said...

ahahahaha já þokkalega! undur og stórmerki...

Anonymous said...

aaahahaha mér fannst hláturinn bestur.. :D

Anonymous said...

Ég þarf einmitt að hringja aðeins í hana Sögu og ræða við hana um hvernig gengur að læra á gítarinn. Hún var eitthvað að tala um að hún væri í einhverju veseni með G moll. Kannski ég geti hjálpað henni símleiðis ;)

Sólrún

Embla Kristjánsdóttir said...

þvílík einasta snilld :)

Anonymous said...

hahaha henni finnst þetta geggjað gaman:D

Anonymous said...

Hún er náttúrulega bara snillingur þessi litla skotta
knús til ykkar frá dk

Anonymous said...

Snilld :)
knús í kotið
kv, Elva

malla said...

hahaha omg hversu fyndið er þetta! hefði verið gaman að heyra hvað var sagt hinu megin á línunni! þau hafa verið að slúðra af leikskólanum!

Anonymous said...

hahahah já.. Tómas sagði víst bara: já saga, já og hló :D hún er algjörlega með hann í rassvasanum;)

Anonymous said...

En hvað var Saga að segja?? hahahaha þetta var of fyndið

Kv. REX

Anonymous said...

hahahaha saga var held ég í afbrýðissemiskasti. heyrði að hún fór eittvað að tala um Heklu margréti, það er vinkona þeirra beggja... hmmmm ætli hún sé komin með keppinaut!? hún sagði eitthvað hekla margrét skamm ég er reið og skellti svo símanum niður í sófann... hardcore gella;)

7bba

Anonymous said...

Æjj vá snilld!! Ég grét úr hlátri við að horfa á þetta... bara æðislegt!!! Tungurnar sem hún talaði voru alveg óskiljanlegar!! haha