Tuesday, September 2, 2008

Tímamót..

Nú eru tímamót.. skólinn er formlega byrjaður! Ég byrjaði í gær og er bara mega hress með það:) Ég verð að vinna soldið mikið með skólanum, eða nánast alltaf þegar ég er ekki í tíma... nema á föstudögum, þá er bara skóli... hip hip húrra! Ég er með ágætis töflu þannig að það var ekki erfitt að pússla vinnunni inní það:)

Ég fékk stöðuhækkun í vinnunni og er orðin skjalavörður Fiskistofu...:) Klárlega heitasti skjalavörður landsins eins og táningurinn orðaði það:P Og í kjölfarið á þessari breytingu þá fékk ég vææææna launahækkun þannig að ég er mega kát:)

Helgin var góð og mjöööög annasöm! Fór útað borða með táningnum á fimmtudagskvöldið.. fórum á tapasbarinn, mjög gott að borða það og gaman:* Á föstudeginum var afmæli hjá söru og kveðjupartý hjá sögu frænku því lillan er að flytja til DK..!! Á laugardaginn var ættarmót uppí kjós og eftir það bauð ég frænkum mínum og steindóri frænda heim í sötr og spjall...:) mega næs og gaman að hafa svona frændsystkina hitting! þau fóru í bæinn um hálf 4 og gamla þreytta einstæða, útivinnandi og námsmóðirin fór í bælið... sem var gott:)
Á sunnudaginn var svo hittingur hjá Rut þar sem að ég, Kristín Davíðs og Rut hittumst ásamt gríslingum... takk fyrir okkur... þetta var alveg agalega kósý:) svo eftir hitting var farið beint í ammli til Hjartar.... takk fyrir okkur þar líka:)

Ohhhh svo mega skemmtileg svona upptalningarblogg..ÆL!

Við Þórey og gudda komumst að því í gær að ég er búnað missa viðurnefnið "Single hot momí"...! ég sver að ég felldi smá tár því þessi titill hefur fylgt mér svo ofsalega lengi! En þórey var nú ekki lengi að finna nýtt viðurnefni, "teen molester" hehe.. jájá hún er með kjaftinn fyrir neðan nefið... það fer ekki fram hjá neinum;) En langar samt ennþá að vera hot momí... má ég þaggi alveg!?
ohhh ég þarf alltaf að K*** í vinnunni og ilmsprayið er búið...... ekki mér að kenna samt! það eru greinilega fleiri hérna sem eiga sök í máli... hmmmmm!

Í lokin eru myndir af ættarmótinu... eða af mér og Húsamúsinni... sem skemmti ættingjum sínum líka svona vel.. með söng og dansi uppá sviði...;)



bleeee 7bba

p.s. á miðvikudagskvöldið fór ég með lindu sætu á vegamót.. namm það var geggjað.. talað um stráka og þuml og putt og rúnk og tott og sleikj og allt.....

p.s.s. á fimmtudagskvöldið kom mín ástkæra Linda og hennar ástkæri ástkæri Árni steinar til þess að passa músina mína svo að ég gæti farið í sleik við táninginn... ;)

17 comments:

Anonymous said...

til hamingju með þetta allt. rosa ánægð fyrir þína hönd. allt er svo bjútífúl í dag eitthvað. skál fyrir okkur! sjáumst í leiðtoganum.. jeijjjjjjjjjjjjjjj :D:D:D:D:D

Anonymous said...

Þú ert dugleg og hefur altaf kunnað og getað bjargað þér sjálf, til hamingju með þetta mín kæra dóttir, elska þig. Stolt mamma.

Anonymous said...

Nafnið mitt hefði getað komið svo fallega fyrir tvisvar í þessari færslu en gerði það ekki.. búú!

til hammó með að vera ekki lengur single hot mommí! klárlega máttu ennþá vera hot mommí.. líka MILF.. en teen molester er flottasta nafnið finnst mér.. "hot teen molester"..

7fn said...

kíktu núna lindan mín...:* luv and pís.. og hættu að vera í fýlu!!;)

Anonymous said...

ROOOOOMY!!!!!!!!! Ok, mikilvægast af ÖLLU, erum við ekki pottþétt VENAHJÓN???????:D

Gvöðný, hvað segiru um það?

Hlakka allri til að hitta manninn:) Hæ Grétar:)

Anonymous said...

sjibbý! :)
ooooog síðan komu linda og anja á sunnudaginn og fengu mergjað tussu góðan mat hjá ykkur og gleymdu að taka það sem að þær komu til að ná í..

p.s. róleg á ástkæri ástkæri. oj bara!

7fn said...

Roomy: þú ert ÖLL skrefinu lengra í þessu heldur en e´g.. mér hefur ekki enn tekist að nafngreina greyið manninn... hahaha

Er kristján ekki bara hress með þetta kynslóða bil sem er á milli þeirra..?;)

Linda: hættissu.. þið eruð massa ástfangin... vúhú:D:D

Særún said...

Já takk aftur fyrir mig þarna á laugardaginn. Mega stuð. Ég er ennþá að jafna mig eftir allar þessar gaurasögur ykkar. Og svo sá ég það þarna á facebook að þú værir in a relationship?! Af öllum stöðum. Svo verðurðu örugglega bara að hafa smá sýningu á gripnum fyrir ættingja og svona. Ég verð á fremsta bekk ;)

Anonymous said...

EG styd MILF nafnid. Tad er lang best af tessu!!!

Tetta verdur vonandi ekki til tess ad tu hættir ad tala um ridingar, putt og allan klura pakkann a sidunni.

Isbjørn

Anonymous said...

Særún: iss folasögurnar eru nú bara rétt að byrja ... og að sjálfsögðu færðu að sjá gripinn.. hann verður til sýnis í perlunni næstu helgi frá 12 - 18 í búri 2b...;)

Kiddi: MILF er náttla bara ég:) og putt og klám... nei hugsa að ég leyfi því að sjarma áfram uppá síðuna mína... sáttur?:)

Anonymous said...

Jú Krestján ætlar að kenna honum að sparka í bolta og svona ýmislegt:)

Anonymous said...

er svo ánægð fyrir þína hönd með jobbið og táninginn. Þú átt eftir að massa þetta með skólann, vinnuna og móðurhlutverkið, stundum gengur best þegar það er brjálað að gera.

Anonymous said...

Sjöbba mín, númer eitt að þú sért glöð og hamingjusöm með þetta, og aldur er afstætt hugtak það hefur marg sannað sig, og augun eru spegill sálarinnar,og ég efast ekki um að þessi ungi maður sé góður drengur og eigi eftir að sanna sig. Mundu hamingjan er Ferðalag en ekki Áfangastaður. Þín mamma.

yanmaneee said...

jordan 12
nike air force
fitflops sale clearance
longchamp
supreme new york
balenciaga shoes
balenciaga
golden goose
kobe shoes
nike max

seneeh said...

replica bags aaa quality replica bags and watches replica bags qatar

seesmacko said...

check that Loewe Dolabuy have a peek at this site www.dolabuy.su pop over to this web-site Valentino Dolabuy

thebeath said...

Chrome-Hearts Dolabuy replica bags online uae sites replica bags 168 mall Click Here 7a replica bags philippines