Tuesday, November 11, 2008

Veikindi... góð tímasetning!


Já ætla að væla...

Saga kom heim úr leikskólanum í dag slöpp.. klukkutíma seinna sofnaði hún á bakinu á mér! þá komin með 39°c... fór stuttu síðar langt upp í 40°c! Litla skinnið, stinur bara og segir: "ég vil vatn" .. æ ég verð alltaf svo leið þegar hún verður svona lasin... vorkenni henni svo hryllilega!

En þetta eru 3ju veikindin þessa önn! hvaða rugl er það!? mér finnst ég meira og minna búnað vera heima eða með hana með mér í vinnunni alla þessa önn! og með afar slaka skólasókn! ef það er ekki veikindi þá er það aðlögun... Mikið væri nú gott að hafa aðstoð á svona stundum! Miiiiiikið hlakka ég til þegar táningurinn minn kemur alveg í bæinn...

Ég held að það verði kraftaverk ef ég næ þessari blessuðu önn... mér finnst ég aldrei vera að læra.. ég hef ekki opnað neinar bækur, ekki eina! Eina sem ég hef gert þessa önn er að taka viðtöl, afrita viðtöl, skrifa verkefni og ritgerðir.. vera með veika mús, vera með mús í aðlögun... vera alltaf slöpp og þreytt (ekki ólétt samt! alveg á hreinu...), hafa litla orku...

Ég hlakka til þegar jólin koma:) fyrir jólin ætla ég að baka! ég ætla að baka piparkökur og leyfa sögu að skreyta þær:) ég ætla að njóta þess að vera með litlu dósinni minni, knúsa hana og kremja... ekki vera pirruð þó að hún helli niður eða rekur sig í eitthvað.... mér finnst ég búin að vera svo pirruð við hana ef hún gerir eitthvað vitlaust... fæ alltaf strax sammara! Ég held að þetta sé álagsveikin... stundum finnst mér ég vera að kafna!

Nú liggur hún hjá mér í sófanum, stinjandi úr mjög líklega beinverkjum og hita... hálfsofandi og þambar vatn öðru hvoru.. svo sæt en svoooo svoo lasin... elskana mest!

En ég ætla að fara að læra.. wish me good luck:)

7bba
p.s. mynd dagsins: þegar ég breyttist í eðlu... furðulegt alveg að tánó finnist ég svona heit... er samt smá heit þarna;)

Friday, November 7, 2008

Krepputími..

ég er í svo leiðinlegum tíma að ég ákvað bara að blogga!

  • í gær var ég að greiða mér og týndi feluspennunni í hárinu á mér! skil ekki hvernig mér tókst það, ég er með 7 og hálft hár á höfðinu. En svo sá ég hana undir klósettinu (ojj) ... enda gat það bara ekki verið, eðlisfræðilega séð, að spenna gæti týnst í 7 hárum... neeooooo!
  • akkúrat núna er aaaalveg að líða yfir mig úr hungri... 
  • í gær var ég glöð, alveg mega glöð! á einni sekúndu tókst mér að verða ógeðslega óglöð! yfir því sama og ég var mega glöð yfir! það er pest... grenj
  • partý á morgun... vúhú! sp. um að verða bara blelluð og gefa skít í kerfið! 
  • ég er samt svo glöð hvað ég fæ alltaf góð komment fyrir viðtölin mín. fékk áðan: "frábært viðtal í alla staði"... jess:D
  • fór áðan að tala við Dr. Guðnýju Guðbjörnsdóttur. hún verður semsé leiðbeinandi minn í BA ritgerðinni minni. við spjölluðum helling og ég held ég fari að missa smá þvag í brókina yfir spenningi á að byrja á henni! er alveg eðlilegt að vera svona spenntur yfir ritgerð?? ætli ég sé með dulda ritgerðarþrá... hún hefur allaveganna aldrei áður látið á sér bera.... vertu velkomin þrá:D
  • það er verið að tala um vændi núna í tíma.. það er alveg áhugavert... vændi eykst sumsé í krepputíð.. í flestum löndum! sjæse.. ætli hafi sést til mín í gær... túdilú
  • Linda, má ég koma í frystinn til þín? ekki með vagínuna samt... 
7bba

Wednesday, November 5, 2008

MEst að lesa..

Langar að deila þessu krúttlega myndbandi með ykkur...:)
Þetta er ein leiðinlegasta bók fyrri OG seinni tíma! og þetta neyddist ég til þess að lesa á hverju EINASTA kvöldi í nokkrar vikur! grenj! Þetta er svona bók um EKKERT sem e-r hefur skrifað í feitustu vímu ever!



Mér finnst samt tásurnar hennar eila krúttlegastar af þessu öllu saman...:D

En sem betur fer er keisaraæðið hætt.. og við tók dýrin í hálsaskógi. Og ég má ekki lesa hana.. niii bara SYNGJA! þannig að ég syng á hverju kvöldi alla bókina.. greyið nágrannarnir:)

7bba

Tuesday, November 4, 2008

Fullorðna barn!

Barnið mitt er orðið fullorðið. um daginn hringdi síminn, það var Tómas. Hann spurði eftir Sögu! þetta er í fyrsta skipti sem saga hefur fengið formlegt símtal:) Hún var ekkert lítið ánægð með þetta, tók sér smá pásu frá gítarnum og spjallaði heil ósköp við kærastann... en ekki á mannamáli! hún fór aftur í fornöld og talaði eitthvað steinaldarmál.... en tók sér pásu frá gítarnum, það er alveg hellingur.. hún er gjööööörsamlega límd við það apparat!

ég náði símtalinu upp á vídjó... enjoy!



7bba

Thursday, October 23, 2008

Viðtalið endalausa...

... sem var alls ekki slæmt viðtal.. bara svo dröllölengi að pikka þetta inn! ég sem hélt að ég væri svo brjálað fljót að pikka! ég er það samt.. mamma er alltaf alveg gáttuð þegar ég er að pikka;)

En ég er semsé að afrita viðtal númer tvö, stefnir í 45 bls... svo á ég eitt viðtal eftir og eina þátttökuathugun, greina viðtölin í þemu og gera lokaskýrslu. í öðrum áfanga á ég eftir að gera eitt viðtal, greina það og gera skýrslu. í öðrum áfanga á ég eftir að skila mega ritgerð og fyrirlestri. í síðasta áfanganum á ég eftir að skila einu 25% verkefni og 50% heimapróf! guð minn góður... grenj!

Fyrir utan allan lærdóminn þá er ég að fara á námsskeið í vennönne... um nýja focal skjalakerfið og svo þurfum við Elínbjörg að kenna starfsmönnum fiskistofu á það batterí... eeeee já bíddu ég ætla aðeins að deyja úr stressi og fela mig inní skáp!

Ég ætla ekki að segja ykkur hvað mig hlakkar ofsalega mikið til að fara í jólafrí....!!! baka smákökur, kaupa MJÖG FÁAR jólagjafir, föndra með sögunni minni, hitti fólk, fara í sleik... já bara allt sem mann langar! svo er ég nú að viðra þá högmynd að skella mér austur helgina eftir próf... á nú eftir að leggja það undir ROOMY... veit ekkert hvernig stendur á hjá henni þá... kemur í ljós:) en ég er semsé búin í prófum 10 des....

Saga er byrjuð á sæborg... hún er í aðlögun núna og það gengur ágætlega. Hún er samt voða lítil í sér greyið:( fer að háskæla þegar ég fer... en þetta kemur.. þetta er svo sjúkleg breyting fyrir hana! það er náttla yfir höfuð lítið rót á henni... er mikið heima með mömmu gömlu, búnað vera í sama leikskólanum frá fæðingu nánast og er mikið fyrir fasta rútínu. þannig að þetta er breyting! EN ég hef góða tilfinningu fyrir þessu... þetta verður frábært enda frábært starfsfólk á sæborg:)

það gengur svakalega vel að hætta á bleiu. Hún bara hætti einn tveir og bingó, líka á nóttunni. Hún pissar stundum undir og átti erfitt með að kúka ekki á sig. EN þetta er að koma núna og hún segir til þegar hún þarf að kúka... og finnst geðveikt kúl þegar hún sér gaurinn fljóta í klósettinu..:D hún er náttla bara snillingur!

Saga er farin að nota lýsingarorð til að lýsa t.d. hvernig sér líður. Hún segir oft: ég er hrædd, ég er feimin, ég er sibbin.. ´það er svo mega krúttlegt:D svo kann pían að telja uppá tuttugu.. það er nú ekki amarlegt...ha!

En jæja.. nýta tímann... afrita afrita afrita....

ble.. 7bba

Friday, October 17, 2008

Ég er enn að ná mér...


... já ég er ekki að grínast! ég er enn að ná mér eftir hræðilega atvikið hjá Mörtu um daginn:(


Við semsé vorum hjá Mörtu í heimsókn og í mat. Saga fer inní herbergi að leika.. að ég hélt!! Allt í einu heyri ég ofurlágt: "mamma, mamma!" ég fer inn og þar stendur ungfrúin, búin að gera í buxurnar, stendur uppí rúminu hans Hjartar, ÖLL útí kúk á báðum höndum og er að mála gluggakistuna með líka svona fínum brúnum lit!!!!! Ég fékk smá maníu/taugaveiklunarkast! mér langaði helst að setjast niður bara og fara að grenja! Reif hana niðrúr rúminu (það var afsökun fyrir að vera harkaleg), inná bað... þar var ég alveg í kross því ég gat ekki athafnað mig við þetta.. hún greip alltaf í mig með kúkahöndunum sínum!!:( þannig að ég var öll orðin útí kúk! Greyið barnið grenjaði og grenjaði.. aðallega yfir því hvað mamman var manísk!


Þetta er mín versla upplifun á kúk held ég bara í lífinu! ég gerði þetta víst sjálf þegar ég var lítil... kúkaði á mig, klæddi mig úr bleiunni og makaði kúknum útum allt rúm! jammmmmí! hvaðan ætli dóttirin fái þetta..hmmmm?

mynd dagsins: Saga og Hjörtur (greyið sem þarf að sofa beint undir kúka-gluggakistunni)

7bba

Wednesday, October 15, 2008

En fallegt..

Já það má segja að ein setning geti alveg bjargað deginum... og hvað þá þegar maður er á ljótunni!

Kiddi, æskuvinur minn, var í viðtali í dag á http://www.handbolti.is/ og ég varð alveg sérstaklega sæl með eina spurningu hjá honum, en hún var svona:

Fallegasti kvennmaður sem þú hefur séð? Sjöfn Kristjánsdóttir er ein af þeim fallegri sem að ég hef séð í gegnum tíðina.

Það er ekki leiðinlegt að lesa svona um sjálfa sig og hvað þá frá gömlum vin:) takk kiddi minn, U made my day eins og ég sagði þér áðan.


ég vona samt alveg innilega að þú hafir verið að horfa á þessa mynd þegar þú svaraðir spurningunni:



Eða þessa... (ég er alveg smá sæt samt hérna.. ef þetta hefði verið 9 ára bekkjamynd ekki 14 ára fermingarmynd)

já eða þessa...


Allir veikir í dag á Fiskistofu.. það er pest! ég er semsagt í gaflinum í dag og er tótallý orðin riðguð! ég er fljót að riðga! svona eins og þegar ég fæ ekki sleik í e-n tíma... ætli þetta eigi ekki við flesta hluti....

Bjórkvöld á föstudaginn á Fiskistofu... ég var beðin um að sjá um súludansinn.. já ætli þetta sé ekki lýsandi dæmi um það hvernig karlmenn horfa á kvenfólk á vinnustað... annað hvort eru konur mömmulegar eða kyntákn! Ég vil minnst vera kyntákn hér á þessum vinnustað já og bara engum vinnustað!! Meðalaldur karlmanna hérna er 50+... en það segir okkur ýmislegt... grái fiðringurinn í hámarki ..! kannski ætti ég bara að horfa á þetta með jákvæðum augum... kannski er ég það sem gerir þeirra dag betri... já hver veit!

Ég er mjöööög utan við mig þessa dagana!!

í gærmorgun kom ég framúr og fann þessa dásamlegu lykt... svona alveg eins og þegar ég er með kveikt á ilmkertinu mínu! ég labba fram í stofu... jájá bara allt útí logandi kertum!!! er ég snargeðveik!! bara allt skíðlogandi ALLA nóttina!!

í gær var ég að renna í hlað eftir skóla, kl 4 nb... og mætti sigrúnu og hún alveg: "hver er í heimsókn hjá þér?"

ég: "ha?! heimsókn? hjá mér? öööööö"

SIgrún: já það er opið út á svalir hjá þér!

ok ok ok.. hvenær kemur sá dagur að ég gleymi því að ég eigi barn!!! ég meina... þetta fer versnandi!!! og ekki má gleyma að ég gleymdi afmælisdeginum hans pabba í ár... og fattaði það 5 dögum seinna!!!! :(

adios