Sunday, October 5, 2008

Lélegur bloggari!

Já ég er það.. alveg lélegpunkturis!

Eins dags frægð var skemmtileg.. ekki amarlegt að fá að taka þátt í svona umræðum og vera á málsvari fyrir námsmenn á íslandi:)

Stundum finnst mér ég vera gömul.. næst verð ég 28 ára.. í gær var ég 12 ára.. skil ekki hvernig þetta fór svona!! hmmm..
en allavega, þá fengum við Saga þann heiður að sækja Aron Bjarka bróður hennar á leikskólann á fimmtudaginn:) Aron var allur að leika í móanum þegar við komum og var mega ánægður að sjá okkur, sérstaklega að Saga hafi komið að sækja hann:) Þegar við vorum inní fataklefa að klæða hann úr útifötunum þá var komin hópur af krökkum í kringum okkur með ALLSKONAR spurningar. Ein stelpa spurði mig: "ertu mamma hans?" ég sagði nei ég er ekki mamma hans:) og þá spurði önnur: "ertu AMMA hans!?" ÖÖÖÖÖÖ ok ég er alveg að verða 28 ára en mér finnst ég ekkert sérstaklega ÖMMULEG! og ég sagði nei ég er ekki amma hans:) garg! og þá sagði hún: "hver ertu þá?" ég sagðist vera vinkona mömmu hans. Og þá sagði hún: "og er hún (og benti á sögu) vinkona arons?" ... úfff ef ég hefði sest niður með 4 ára gamalli stelpu og útskýrt þessa familíflækju barnanna þá hefði það tekið óratíma ... og ef ég hefði farið að segja: nei hún er systir hans! þá hefði verið mjög furðulegt að ég væri mamma hennar en ekki mamma hans... þannig að ég kinkaði bara kolli yfir því að saga væri vinkona arons:) Svo drifum við okkur bara fljótlega út í bíl..
Börn eru yndisleg, spyrja svo fyndna og flókinna spurninga:) og maður er sjaldnast við svör við þeim öllum... en maður reynir sitt besta:)

Ég átti góða helgi.. barnlausa að hluta.. en hún er komin í mömmufang núna og það er yndislegt:) Mamma er búnað vera alveg rosalega dugleg að hjálpa mér, búnað vera hérna mikið til að passa, þrífa og ég veit ekki hvað og hvað.. takk mammsan mín:*

Embla tók hana í gær fyrir mig og svo rósa í framhaldinu á því:) enda er ég endurnærð núna á líkama og sál.. hefði verið gott að hafa táninginn í kúrinu í nótt og í morgun... en það verður eftir nokkra daga:*

kv. Teen molester

10 comments:

Thorey Kristin said...

Vá 12 í gær og nú 27 ? Samkvæmt bókinni skýringar á hegðun þá er þetta alveg klárlega logically impossible ! Ef ég hefði ekki lesið þessa frábæru bók hefði ég giskað á að þú hefðir klárað tímavélina mína... en já alla vegna þarf aðeins að fara slíta mér frá bókinni .. greinin var mjög flott ásamt myndinni og er öll í að vinna í því að fá mér svona eitt stykki teen ! Hangi alveg á síðunni " buyteen.com"
:) lov og knús úr lesstofunni

Anonymous said...

aaaaahahahaha ég hló svo mikið yfir þessum börnum á leikskólanum.. "ertu amma hans?"

Anonymous said...

Hahaha snilldar leikskólaferð! Rosa hefur verið gaman hjá þeim systkinum. Elska að skoða myndir af þeim á Sögu síðu. Sætast í heimi:D

Anonymous said...

hahaha....ég sé þetta alveg fyrir mér, þú að reyna að útskýra fyrir barninu hvernig þetta væri allt saman...hefðir kannski getað teiknað upp ættartré :)
knús á ykkur mæðgur :*

Anonymous said...

Já, díses hvað börn geta slegið mann út af laginu. Þá sjaldan maður verður orðlaus þá er það yfirleitt þegar blessuð börnin koma með spurningarnar :)

En frábært viðtalið við þig í blaðinu. Ánægð með þig að vekja athygli á vítahring sem fullt af námsmönnum eru í. Þetta er alveg glatað ástand

7fn said...

Þórey: sver það að ég var bara 12 ára í gær.. ætli ég verði þá 42 ára á morgun.. ónó!!
en hahaha buyteen.com djö hlakka ég til að sjá hvað þú keyptir:D

Linda: já amma!! meiri vitleysan hahahaha.. er ég þá GILF en ekki MILF!?

Roomy: já þau eru sko sætust í heimi.. og svo góð saman:) og svo mörg smáatriði hjá þeim sem eru lík..

EVA: ahahahahaha ættartré.. sjitt hvað ég þyrfti stórt og breitt blað :D en góð hugmynd samt!;)


Júlía: takk fyrir það sæta:) Já þetta er alveg hörmungarástand í þessu landi.. vonandi koma betri tímar fljótlega... knús!

Anonymous said...

ELSKA ÞIG DUGLEGA STELPAN MÍN. MAMMA.

Anonymous said...

Já mér fannst þú sko flott í blaðinu ;)
Knús í klessu
Krissa

yanmaneee said...

nike vapormax
yeezy shoes
balenciaga sneakers
michael kors outlet
golden goose sneakers
retro jordans
coach handbags
lebron 15 shoes
coach outlet
supreme clothing

Unknown said...

web link Chloe Dolabuy Get More Information dolabuy.co click for more info replica bags buy online