Tuesday, December 15, 2009

Risin upp frá dauðum...

Já æhhjj langaði eitthvað allt í einu að blogga aftur....

Ég veit í rauninni ekki hvernig blogg ég vil að þetta sé... sko ekki nenni ég að blogga um þjóðmálin nema í ofsalega litlu mæli! og ekki nenni ég að velta mér upp úr stjórnmálum og ekki nenni ég að telja upp daglegt amstur.... kannski ég komi bara með raunsögur héðan og þaðan... klúrar og kræsandi;) ekkert endilega af sjálfri mér heldur bara svona héðan og þaðan!

Ég held samt að þessi skyndilega bloggþörf sé bara pjúra athyglissýki.... svona eins og ég er alveg sjúk í að fara í sleik þessa dagana.... held að það sé líka pjúra athyglissýki og þörf fyrir að losa um einhverja spennu!

En ég er nú víst að fara út á lífið á föstudagskvöldið! Jólahlaðborð Fiskistofu... og svo er partý hjá skellibjöllunni. Ég er búin að lofa steina og olla að koma með mér í partýið... verst að þeir eru báðir á föstu og gera lítið gagn fyrir snælduvitlausar einstæðar mæður... en suss, það má nú horfa!

sp. um að taka orminn um helgina...
xxx
7fn

5 comments:

gemplus said...

er að fíla þetta!! gó sjöbbublogg..

Anonymous said...

gaman, gaman :)
Anna frænka

Anonymous said...

þessu hef ég beðið eftir gríðarlga lengi skal ég segja þér. Loksins kominn kona (stúlka) sem að talar eins og ég. jibbí.

Keep up the good work baby...

Kiddi Björgúlfss

Anonymous said...

Steina og Olla!!

Já við komum með og horfum! :)
kv
Steini

Anonymous said...

Mikið er ég nú ánægð með þig ;)

Mun sko fylgjast ssppeeeeeennttt með!

Knúsí, Íví kiwi