Tuesday, November 18, 2008

Gátlisti um aukinn sveigjanleika


já.. þessu var dreyft í tíma hjá mér í dag. tíu spurningar og maður átti að setja x í annað hvort a, b eða c eftir því sem átti við mann. ég merkti í a átta sinnum og b tvisvar sinnum. Svo kom niðurstaðan:

"Ef þú hefur oftast merkt við A, þá gætir þú verið undir verulegu álgai vegna skorts á jafnvægi í lífinu. Með tímanum gæti framleiðni þín minnkað. Heilsan, sambandi þitt við aðra og starfsgeta þín til framtíðar gæti beðið skaða. Farðu að huga að eigin þörfum svo þú getir haldið kröftum og lífsgæðum. Þú gætir beitt þér í starfsmannafélaginu að því að stuðla að auknum sveigjanleika til hagsbóta fyrir aðra Starfsmenn og vinnustaðinn í heild. Skoðaðu listann aftast í möppunni yfir aðila sem hægt er að leita til um persónulegan og faglegan stuðning við innleiðingu á auknum sveigjanleika."

Já sæll! Ættum við kannski að fara að safna í púkk fyrir líkkistu? ég set bara svona sparibauk á kommóðuna í holinu hjá mér... þið getið þá hent klinkinu í hann.. hlýt að ná í eina kistu á stuttum tíma.. ég er nú ekki stór svo hún er nú varla dýr! 

Það er ekki mikið eftir af þessari geðveiki... áfram ég!! vúhú:D

7bba

p.s. á þessari mynd hafði ég allan tímann í heiminum fyrir sjálfa mig! enda var ég ALLTAF full... spuring hvort er betra... 

10 comments:

Rakel said...

Heyrðu bara nákvæmlega eins og ég, enda í svipaðri stöðu.
Eftir smá tíma ferðu að fá hjartsláttatruflanir og flog!

Ætli við getum fengið tveir fyrir einn á líkkistum??

Anonymous said...

hahahahaha það er alveg spurning!
eða kannski fengið að vera saman bara í einni?

sjöbba

Anonymous said...

Shit hvað ég man mest eftir þessu djammi þar sem þessi mynd var tekin, hvað í fjandanum vorum við að reykja??:O

Anonymous said...

úfff ég man það ekki, e-a friðarpípu... en ég man að ég endaði ælandi uppá klósetti! grós

sjeibs

Anonymous said...

Ég væri til í að taka þetta próf og sjá hvað kæmi út hjá mér. Er ekki leið að smella því hérna inn?

Kiddi

Anonymous said...

Ég er smá að elzka hárbandið þitt.. nennirðu að vera svona á næsta tralli?

Anonymous said...

haahha já ég var reyndar full alla helgina það var helv gaman .. eiginlegra skemmtilegra en geðveikin! En mar þrífst vel í geðveikinni og svoooooooooo gott að slappa af eftir hana looove it :) ÁFRAM ÞÚ !!!! KOMA SVO!!!:)

Anonymous said...

Hæ sæta stelpan mín, mamma þín man nú tímana sem þið Roomy voruð að JAMMA á Beggunni, bara yndislega skemmtilegir tímar hjá ykkur og góðar minningar. Þið eruð alltaf flottar bæði að innan sem utan og móðurhlutverkið fer ykkur báðumvel. Knús á þig fallega duglega Músin mín, elska þig. Mamms.

Anonymous said...

Ég er frekar til í að leggja í púkk fyrir meiri sveigjanleika :) Stutt eftir, þú meikar þetta án þessa að enda í kistu.

Gangi þér vel :)

Anonymous said...

Ég hef enga trú á því að þú farir að henda þér svona auðveldlega ofan í kistu Sjöfn mín, svo eru þær lika svo andskoti dýrar!!
Biddu um gott knús reglulega og hugsaðu að hversu stutt það er í jólaFRÍ með fullt fullt að skemmtilegum dögum :)

Kv. Hildigunnur