Thursday, March 20, 2008

Kompás 18. mars 2008

Ég hvet alla til þess að horfa á ÞENNAN ÞÁTT ... ég þarf ekki að segja meira...
En ég er með annað málefni, sem er nú ekki eins alvarlegt og þetta hér að ofan en ég verð samt sem áður að redda því ... hver getur aðstoðað mig í sumar og verið með hnuðluna mína e-ð á meðan hún er í sumarfríi?
14, 15, 16, 17, 18, 21, 22, 23, 24, 25, 28, 29, 30, 31 júlí og 1, 4, 5, 6, 7 og 8 ágúst. þetta eru þeir dagar sem sögu vantar e-n til þess að leika við sig meðan að mamman vinnur fyrir okkur á meðan:) Sigurveig er búnað panta að hafa hana í viku, veit ekki alveg hvaða dagar það eru... en þá vantar okkur restina af dögunum... Það væri okkur ómetanlegt ef að e-m langaði til að hjálpa okkur..:) Er ekki e-r sem er að fara í bústað eða eitthvað og myndi vilja leyfa henni að koma með?
En það eru bara komnir páskar.. já sveimérþá... Helgin fer að verða þéttsetin hjá mæðgunum.. og svo þarf ég að vera dugleg að læra þar sem að ég er að kafna í verkefnum og öðru slíku..en iss það reddast;) Mallsí, Sigrún og Tómas eru að koma í mat í kvöld til okkar og Sara litla frænka ætlar að koma og gista hjá okkur mæðgum þannig að það verður stuð hérna í kvöld;)
En allavega hafiði mega góða páskahelgi..

Nokkrar myndir í lokin af Sögunni minni..






7bba

6 comments:

Anonymous said...

GUÐ!! Veistu ég horfði á þennan þátt og grét! Greyið þessar konur. Eina leiðin til að þetta gangi upp er að þetta náist á myndband eða að þeir játi, og hvað ertu miklar líkur á því? Og hvað er sigur við það að málið falli niður þegar það er ekkert hægt að gera sökum ungs aldurs hjá barninu eins og hann talar um hjá barnavernd? Ótrúlegt kerfi!

Anonymous said...

Heyrðu -ég myndi gjarnan vilja hafa hana láni vikuna 21. til 25. júlí :)
Hlakka til að dansiballast með þér annað kveld víúvíú!
Sigurveig

Anonymous said...

já sumarfrís pússluspilið var búin að gleyma því ARggggg kv þórey neibör

Anonymous said...

Við finnum eitthvað skemmtilegt út úr sumarfríinu...ætti vel að geta tekið allavega viku og einhverja fleiri daga ef með þarf :) (vísu í ferðalagi fyrstu 2 vikurnar í júlí en annars bara í beibíorlofí)
Kv. Risa og epli

malla said...

takk fyrir matinn sæta mín! ógeð gaman að hitta ykkur :-)

Embla Kristjánsdóttir said...

ég get nú alveg hugsað mér að hafa hana eitthvað ;) hlýt nú að fá eitthvert sumarfrí... vona ég! tékka á því eftir helgi :)