Til hvers er frami...? Til hvers er ég að mennta mig? Af hverju vill ég ná langt í lífinu og á hvaða sviði vill ég ná langt?
Það er svo mikið kappsmál í dag að eiga allt flottast, að klára sem flestar háskólagráður, fara í flottasta MA námið og MBA og allt þetta sem er svo voðalega mikið inn í dag.. vinna sem mest, vera einhleypur, sjálfstæður og standa sig með prýði.. Þetta er að sjálfsögðu rosalega flott á CV lífsins..;) Og hversu oft hefur maður heyrt: "nei hún Dúdda hefur engan tíma til þess að eiga kærasta, hún er í fullu námi og vinnur 500% vinnu með, svo er hún að fara út í doktorsnám og hefur sko engan tíma til þess að eiga börn strax!" Greyið Dúdda þegar hún vaknar upp 38 ára, í dragtinni, með snúðinn í hárinu, hvítvínsglasið í hægri hönd og capri sígarettuna í vinstri, og fattar það að lífið snýst kannski pínulítið meira um það en að bara eiga sér frama, peninga, aðdáendur sem eru á eftir peningunum hennar og til að komast ofan í brækurnar á henni... nú langar Dúddu til að fara að eignast börn! ok ok.. vonum að það gangi svona þegar hún er að skríða á fimmtugsaldurinn...
Nei þetta er bara smá pæling.. það var kona í tíma í morgun sem kom með svo ágætis punkt, hún var að tala um að dæmið hefur snúist við.. hér áður fyrr var fólk að mennta sig, vinna hart og mikið til að geta eignast börn og gefið þeim gott líf, horft á börnin sín vaxa og dafna, og vera ofur stolltur af öllu sem þau gera, eignast góðan mann og lifa sem fjölskylda. í dag er öllu frestað fyrir námið og framann... og svo loxins þegar við ætlum að fara að eiga börn þá er það bara pínulítið orðið of seint!
Ég held að ég sé þarna e-s staðar mitt á milli.. ég á barn en ég vill líka frama og ég held voða fast í sjálfstæði mitt;) Ég á eftir að verða óþolandi sambýlingur þegar þar að kemur! Þetta er alveg voðaleg togstreita.. mig langar ekki að binda mig alveg, ég vil vera í svona frekar fjálsu sambandi til að byrja með en samt ekki opnu sko!!! hell no! ég vil ekki sameina neitt fyrren allt er orðið 100% pottþétt! Er e-r sem vill byrja með mér??:D nei ég hélt ekki... þá held ég bara áfram að sofa hjá gömlum sjénsum.. það er fínt!
jæja.. ætla að fara í sturtu og gera mig enn sætari en ég er.. úff;)
7bba
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Bara að gera það sem gerir mann hamingjusaman. Í mínu tilfelli er það ekki skóli, en það er margt sem ég er búin að skapa mér án hans og hef það gott. Það er allt hægt.. bara að vera svolítið frjór og láta drauma sína rætast:)
Fallega kona!
Já það er spurning hvað maður vill úr lífinu!
Ég klárlega vil börnin ... eða kannski á ég þau því ég kann ekki á getnaðarvarnir ??
Enn jæja ... Það er fallegast í heimi að fylgjast með börnunum vaxa og dafna og ég vill ekkert nám í staðin fyrir það.
En þú ert auðvitað fokk sæt skilurðu! fokk fín og fokk frábær :)
ég vill líka börnin frekar en námið og helst fullt af þeim :) þau eru yndisleg ! annars er auðvita gott að læra líka
Er þetta ekki bara spurning um að eiga helling, vera hamingjusamur og vinna helst ekkert.
Kristján I
Post a Comment